Blogg
15.3.2010
Góugleði.

Þetta glæsilega hlaðborð var í Góugleði hér í Vogaselinu. Við vorum 7 hjón sem hittumst og áttum frábæra kvöldstund saman. Hver hjón komu með einn rétt og á hlaðborðinu voru kjúklingaréttir, saltfiskur, plokkfiskur, ferskir ávextir með parmaskinku, brauð með mosarella, grænmetisbaka, rækjur og fleira. Að mínu mati mun meiri kræsingar en þorramatur!
2.3.2010
Sumarmynd

Þessi fallega mynd sem tekin er í fyrrasumar vekur upp góðar minningar og tilhlökkun fyrir komandi sumri.
28.2.2010
Matargerð

Þessi mynd er tekin af þeim feðgum þegar þeir voru að elda saman dásamlegann kjúlla með chilli, hvítlauk og fleiru góðgæti. Svo þegar maturinn er eldaður af svona ljúflingum þá getur ekkert brugðist enda var hann himneskur. Það var Food and Fun hátíð hjá okkur í Vogaselinu. Takið eftir að gamli maðurinn er að rétta úr sér eftir brjóslosaðgerðina, allt að koma hjá honum.
19.2.2010
Bakið á Páli.
Minn kærasti,kæri var í brjósklosaðgerð sem gekk vel og er nú kominn heim í Vogaselið þar sem hann eyðir næstu vikum í það að jafna sig. Ég verð að dekra við hann eins og hann dekraði við mig þegar ég fór í sömu aðgerð fyrir 3 árum síðan. Þegar ég sótti hann á spítalann rifjaðist upp fyrir mér gömul saga, þegar Páll fékk tak í bakið fyrir mörgum, mörgum árum. Hann lá eins og lamaður maður í langann tíma en svo kom að því að hann þurfti að far á klósettið ein og kemur fyrir bestu menn. Ég varð að hjálpa honum að standa upp en þegar ég var að reyna að reisa hann við á gerist það að hann leysir vind
( prumpar á góðri íslensku). Við það brá mér svo mikið að ég missti hann aftur í rúmið og svo hló ég auðvitað eins og asni lengi, lengi því hvað er fyndnara en smá prump. Páll hins vegar emjaði af kvölum, lengi, lengi og talaði ekki við mig það sem eftir var dagsins. Ef svipaðar aðstæður koma upp núna í þessu brjósklosaðgerðarmáli þá hef ég ákveðið að hlæja ekki neitt enda elst um 30 ár og þroskast! (vonandi)
9.2.2010
Afmælisdrengur

Þá er þessi ljúflingur 26 ára í dag. Mér finnst hann hafa fæðst í gær en árin segja annað. Eins og sannri mömmu sæmir þá er ég ákaflega stolt af afmælisdrengnum sem semur tónlist og texta, hefur skoðanir á öllu, sannur mannvinur og stendur sig frábærlega í vinnunni sinni. Til hamingju með daginn minn kæri.
27.1.2010
Hittingur.
Í dag hitti ég gamla skólafélaga á kaffihúsi. Það er nú ekki á hverjum degi sem við hittumst nema auðvitað við Páll skólabróðir sem er minn ektamaki! Hann hefur nú alltaf verið sætasti strákurinn í bekknum að mínu mati! En það er gaman að sjá gráu hárunum fjölga og ,,bros" hrukkunum hjá okkur öllum. Núna tölum við um barnabörnin, heilsuna og gömlu dagana og þó að við höfum kannski öll breyst og elst ,,aðeins" eru allir eins og í gamla daga. Bryndís frænka alltaf svo ræðinn og hress, Kolli alltaf sami ljúflingurinn, Gunnþór svo hógvær og læðir svo út úr sér bröndurunum, Addi alltaf sami sjarmörinn og Palli minn, eins og áður sagði, sætastur, skemmtilegastur og bestur!! Hópurinn ákvað að hittast aftur í mars á Álftanesinu hjá Gísla rakara og skemmta sér saman. Þ.e.a.s ef hópurinn heldur heilsu!! Við fengum góðan gest í hópinn í dag en Nonni Fríðu og Steina, stórsöngvari, kom og fékk sér kaffi með okkur. Það var gaman að hitta hann í eigin persónu en hann er mikill fésbókarvinur minn. Frábært að hitta alla þessa vini úr firðinum eina.
Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 89
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 82714
Samtals gestir: 33819
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 06:36:32
clockhere

